8 nóv. 2006Árið 2006 er ár kvennakörfunnar um allan heim. Í tilefni þess hafa Haukar ákveðið að kalla saman allar körfuboltakonur Íslands til að eiga góða stund saman. Gleðskapurinn verður haldinn föstudaginn 17.nóvember í veislusalnum að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst kl. 20:00. Boðið verður upp á kvöldverð ásamt eftirrétti með kaffi, einnig verða seld drykkjarföng á vægu verði. Ýmsar uppákomur og skemmtiatriði. Mikilvægt er að tilkynna þátttöku fyrir miðvikudaginn 15.nóvember á netfangið arkvennakorfu@hotmail.com. Verð: 2000 krónur.