
6 nóv. 2006Helena Sverrisdóttir, fyrirliði kvennaliðs Hauka, bætti stoðsendingametið í efstu deild kvenna þegar hún gaf 18 stoðsendingar í 108-82 sigri Hauka á Grindavík í fjórðu umferð Iceland Express deild kvenna í gær. Gamla metið áttu þær Reshea Bristol og Jessica Gaspar sem gáfu báðar 17 stoðsendingar í einum leik. Helena bætti um leið einnig met íslensk leikmanns en Alda Leif Jónsdóttir átti það en hún gaf 14 stoðsendingar í einum leik fyrir rúmum sjö árum síðan. Helena var með þrefalda tvennu í leiknum því auk stoðsendinganna 18, skoraði hún 22 stig og stal 10 boltum. Þetta er fyrsta og eina þrennan í kvennadeildinni til þessa í vetur. Helena hefur nú gefið yfir 48 stoðsendingar í fyrstu fjórum leikjum Haukaliðsins sem gera 12 stoðsendingar að meðaltali í leik. Haukaliðið hefur unnið alla leikina og ennfremur skorað 104,3 stig að meðaltali í leik sem er einstakur árangur hjá íslensku kvennaliði en liðið skoraði 103 stig gegn ÍS, 100 stig gegn Blikum, 106 stig gegn Hamri og loks 108 stig gegn Grindavík. Haukaliðið hefur unnið fyrsta leikhluta þessarra leikja með 100 stiga mun, 147-47. Helena hefur líka passað vel upp á boltann í þessum fjórum fyrstu leikjum tímabilsins því hún hefur aðeins tapað samtals sex boltum og hefur því gefið átta stoðsendingar fyrir hvern bolta sem hún hefur glatað í hendur andstæðinganna. Helena hefur alls komið að 75 körfum Haukaliðsins í sigurleikjunum fjórum eða að 18,8 körfum að meðaltali í leik. Helena, sem er 18 ára gömul, hefur hækkað stoðsendingameðaltal sitt öll árin sín í deildinni, hún gaf 4,3 stoðsendingar að meðaltali fyrsta tímabilið sitt 2002-03, var með 6,9 stoðsendingar í leik 2004-05, gaf 8,3 stoðsendingar að meðaltali í fyrra og er nú síðan með 12 stoðsendingar að meðaltali það sem af er á þessu tímabili. Helena hefur alls gefið 434 stoðsendingar í 63 leikjum sínum í efstu deild sem gera 6,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Helena gaf flestar stoðsendingar á þær Kristrúnu Sigurjónsdóttur og Ifeomu Okonkwo sem báðar skoruðu sex sinnum eftir hjálp frá Helenu. Helena gaf 8 af þessum 18 stoðsendingum í hrapaupphlaupum og 9 stoðsendinga hennar komu strax í fyrsta leikhlutanum sem Haukaliðið vann 37-14. Hér fyrir neðan má sjá nánari útlistun á þessu nýja og glæsilega stoðsendingameti Helenu Sverrisdóttur.
