3 nóv. 2006FIBA Europe var að senda frá sér niðurröðun dómara á leiki í Evrópukeppnum karla og kvenna. Sigmundur Herbertsson, Kristinn Óskarsson og Björgvin Rúnarsson eru allir FIBA dómarar og á lista yfir þá dómara sem fá verkefni í vetur. Það er mjög ánægjulegt þar sem FIBA Europe skar niður hóp FIBA dómara fyrir þetta keppnistímabil. Sigmundur dæmir sem hér segir: 21.nóv Evrópukeppni karla: BC Kalev, Eistlandi - BC Kyiv, Ukraínu 4.des Evrópukeppni karla: Amsterdam Astronauts, Hollandi - DTL EKA AEL Lemesos, Kýpur 14.des Evrópukeppni kvenna: CAB Madeira, Portúgal – Pallacanestro Ribera, Ítalíu Kristinn dæmir sem hér segir: 15.nóv Evrópukeppni kvenna: Bourges Basket, Frakklandi – Dexia Namur, Belgíu 16.nóv Evrópukeppni kvenna: Pays D’Aix Basket 13, Frakklandi – CAB Madeira, Portúgal 5.des Evrópukeppni karla: BCM Gravelines Dunkerque, Frakklandi – BC Siauliai, Litháen 6.des Evrópukeppni kvenna: US Valenciennes Olympic, Frakklandi – Ros Caseres, Spáni Björgvin Rúnarsson dæmir sem hér segir: 12.des Evrópukeppni karla: Amsterdam Astronauts, Hollandi – Adecco Asvel Lyon, Frakklandi