1 nóv. 2006Í dag var dregið í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar. Áður en dregið var í bikarnum undirrituðu Guðrún Soffía Björnssdóttir, yfirmaður markaðs- og þróunarsviðs hjá Lýsingu, og Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður KKÍ, samning til tveggja ára um áframhaldandi samstarf KKÍ og Lýsingar. Báðir aðilar lýstu yfir mikilli ánægju með samstarf liðinna ára og litu björtum augum á framtíðina. Þegar búið var að skrifa undir samninginn hófs bikardrátturinn. Einar Bollason, heiðurskrosshafi KKÍ, sá um að draga. Fyrst þurfti að draga fjögur annarar deildar lið til þess að leika í forkeppni. Sigurvegarar úr þeim viðureignum ávinna sér rétt til þess að leika í 32. liða úrslitum. Sindri fékk heimaleik gegn ÍBV og Glói fékk heimaleik gegn Leikni. Þegar þetta var komið á hreint var hægt að draga í fyrir 32 liða úrslitin. Það urðu þrír leikir þar sem að lið úr Iceland Express deildinni mætast. Grindavík fær Snæfell í heimsókn, KR tekur á móti Haukum og ÍR mætir Njarðvík í Seljaskóla. 1. umferð Lýsingarbikarsins - 32 liða útdráttur: Leikur 1: UMFG - Snæfell Leikur 2: UMFN b - Hamar/Selfoss Leikur 3: Drangur - FSU Leikur 4: Reynir S. - Hv. Riddarinn Leikur 5: Þróttur Vogum - Þór Þ. Leikur 6: Glói/Leiknir - KR b Leikur 7: Þór Ak. - Fjölnir Leikur 8: KR - Haukar Leikur 9: Höttur - Keflavík Leikur 10: Fjölnir b - Skallagrímur Leikur 11: Sindri/ÍBV - Valur Leikur 12: ÍR - UMFN Leikur 13: Brokey - Stjarnan Leikur 14: Breiðablik - Tindastóll Leikur 15: Mostri - Breiðablik b Leikur 16: KFÍ - Keflavík b Leikirnir verða leiknir 24.-26. nóvember næstkomandi. Það verður gaman að fylgjast með því hverjir komast áfram og hvort að einhver neðri deildar lið nái að koma á óvart.