30 okt. 2006Dómaranámskeið verður haldið á vegum KKÍ dagana 3.-4. nóvember næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í Smáranum í Kópavogi og hefst á föstudagskvöldinu kl 18:30. Námskeiðinu lýkur með skriflegu og verklegu prófi og þeir sem standast þau fá fullgild dómararéttindi. KKÍ hvetur öll félög til að senda fólk á námskeiðið, þar sem fjöldi starfandi dómara í dag er með minnsta móti. Leiðbeinandi verður Gunnar Freyr Steinsson. Skráningar verða að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 2. nóvember á netfangið gunni@mikkivefur.is. Dagskráin verður lauslega þessi: Föstudagur 3. nóvember:    18:30-22:00 - Bóklegt Laugardagur 4. nóvember:    09:00-11:30 - Bóklegt + skriflegt próf    12:00-18:00 - Verklegt próf Athugið að tímasetningar geta breyst lítillega. Þátttökugjald er ekkert.