
28 sep. 2006Körfuboltatímabilið 2006 til 2007 er að hefjast. Powearde-bikar karla fer af stað í kvöld með þremur leikjum en keppninni var breytt mikið nú á tíu ára afmæli hennar. Í stað þess að 16 bestu lið ársins á undan hefji keppni í 16 liða úrslitum taka aðeins liðin í Iceland Express deildinni þátt að þessu sinni. Átta neðstu liðin, út frá árangri síðasta veturs, spila fyrst um að komast í átta liða úrslitin þar sem sigurvegararnir mæta liðunum fjórum, sem komust í undanúrslit úrslitakeppninnar í fyrra. Með núverandi fyrirkomulagi er ljóst að fyrsti meistari nýs tímabils verður krýndur áður en liðin hefja leik í Iceland Express deildinni. Leikir kvöldsins eru Fjölnir-Hamar/Selfoss í Grafarvogi, UMFG-Þór Þorlákshöfn í Grindavík og Snæfell-Tindastóll í Stykkishólmi. Á morgun mætast síðan ÍR-Haukar í Seljaskóla. Keppni hinna fjögurra fræknu fer fram í Laugardalshöllinni á fimmtudag (undanúrslit) og laugardag (úrslitaleikurinn) í næstu viku. Lið Njarðvíkur, Skallagríms, KR og Keflavíkur bíða spennt eftir úrslitum leikja næstu tveggja kvölda en þá kemur í ljós hverjir verða mótherjar þeirra í næstu umferð. Íslands- og Powerade-meistarar Njarðvíkur fá sigurvegarann úr leik Fjölnis og Hamars/Selfoss í heimsókn til Njarðvíkur á laugardaginn og daginn eftir fara síðan hinir þrír leikirnir fram. KR tekur á móti sigurvegaranum úr leik Grindavíkur og Þórs úr Þorlákshöfn, í Keflavík taka heimamenn á móti sigurvegaranum úr leik Snæfells og Tindastóls og að lokum mætir sigurvegarinn úr leik ÍR og Hauka til Borgarnes og spilar við spútniklið síðasta tímabils, Skallagrím. Sigurvegarnir úr þessum leikjum tryggja sér sæti í keppni hinna svokölluðu fjögurra fræknu í Laugardalshöllinni um næstu helgi.

