24 sep. 2006Það var ekki aðeins íslenska kvennalandsliðið sem var í sviðsljósinu í gær, því Björgvin Rúnarsson FIBA dómari var í Englandi, þar sem hann dæmdi leik Englands og Portúgals í B-deild Evrópumóts kvenna. Portúgal vann nokkuð öruggan sigur á þeim ensku, 54-72, en Björgvin dæmdi leikinn með Miguel Angel Perez Niz frá Spáni. Nú er landsleikjavertíðinni lokið og eru næstu verkefni FIBA dómaranna í Evrópukeppnum félagsliða.