20 sep. 2006Þjálfaranámskeið verður haldið helgina 23. - 24. september næstkomandi í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Nokkrir af okkar íslensku þjálfurum hafa tekið sig saman og ákveðið að halda námskeið hér á landi og vonast er til að þetta geti orðið árlegur viðburður. Við vonumst eftir góðri mætingu til þess að svo geti verið. Á námskeiðinu er reynt að höfða til allra þjálfarahópa, frá þeim allra yngstu til meistarflokksþjálfunar. Kostnaður verður í lágmarki og allur ágóði af námskeiðinu mun renna til þjálfaramála á Íslandi. Allir þjálfarar sem borga á námskeiðið fá miða á kvennalandsleik Íslands og Írlands. Mikilvægt er að allir mæti stundvíslega svo dagskráin geti haldist. Námskeiðsgjald er 2500 krónur og skráning er á skrifstofu KKÍ í síma 514-4100 og á netfangið kki@kki.is Dagskrá kemur inn seinnipartinn í dag