14 sep. 2006Jón Arnór Stefánsson, sem meiddist í upphafi leiks gegn Lúxemburg í gærkvöldi, mun ekki fara með íslenska landsliðinu í leikinn gegn Austurríki á laugardag. Jón Arnór sneri sig illa á vinstri ökkla og er ekki leikfær. Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, hefur valið Arnar Frey Jónsson í hópinn í stað Jóns Arnórs. Landsliðshópurinn sem fer til Austurríkis er því þannig skipaður: 4 Magnús Gunnarsson 25 ára Keflavík 5 Friðrik Stefánsson 30 ára Njarðvík 6 Jakob Sigurðarson 24 ára Vigo, Spáni 7 Jón Hafsteinsson 25 ára Keflavík 8 Egill Jónasson 22 ára Njarðvík 9 Arnar Freyr Jónsson 23 ára Keflavík 10 Páll Axel Vilbergsson 28 ára Grindavík 11 Brenton Birmingham 34 ára Njarðvík 12 Fannar Ólafsson 28 ára KR 13 Hlynur Bæringsson 24 ára Snæfelli 14 Logi Gunnarsson 25 ára Bayeruth, Þýskalandi 15 Helgi Magnússon 24 ára Boncourt, Sviss