10 sep. 2006Næstu helgi, 16.-17. september, stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Njarðvík. Námskeiðið hefst á laugardagsmorgni og stendur fram að kvennalandsleik. Á sunnudeginum verður námskeiðið svo klárað þar sem allir þátttakendur fá tækifæri til að dæma með leiðsögn leiðbeinanda. Nánari dagskrá verður send út í vikunni. Frítt er fyrir alla á námskeiðið, en nauðsynlegt er að áhugasamir skrái sig í [p+]snorriorn@gmail.com[p-]tölvupósti[slod-] eða til skrifstofu KKÍ í síma 514-4100.