
9 sep. 2006Íslenska kvennalandsliðið tapaði naumlega fyrir Hollandi í fyrsta Evrópuleik íslenska kvennalandsliðsins, 66-61 í Rotterdam í Hollandi. Helena Sverrisdóttir átti stórleik og skoraði 25 stig og tók 10 fráköst, Birna Valgarðsdóttir skoraði 16 og Signý Hermannsdóttir tók 13 fráköst og stal 5 boltum. Íslenska liðið leiddi 49-53 eftir þriðja leikhluta en skoraði síðan aðeins 8 stig í lokafjórðungnum. Nánar af leiknum síðar.


