2 sep. 2006Bandaríkin sigruðu í dag Argentínu í leik um bronsverðlaunin á heimsmeistaramótinu í körfuknattleik. Leikurinn var spennandi í byrjun og leiddu Argentínumenn í fyrri hálfleik. Þeir náðu mest 9 stiga forystu í örum leikhluta en Bandaríkjamenn náðu að komast einu stigi yfir í hálfleik. Í síðari hálfleik voru Bandaríkjamenn svo sterkari og náðu að sigra leikinn 96-81. Dwyane Wade var stigahæstur í leiknum með 32 stig, 18 af þeim í fjórða leikhluta. Frakkar sigruðu Tyrki í leik um fimmta sætið 64-56. Úrslitaleikurinn er verður leikinn á morgun. Þar mætast Spánverjar og Grikkir og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á rúv á morgun. Útsendingin hefst kl. 10:15. Spánverjar urðu fyrir miklu áfalli þegar þeirra sterkasti leikmaður, Pau Gasol meiddist í lok leiksins gegn Argentínumönnum. Þrátt fyrir það er líklegt að þetta verðu hörkuleikur enda bæði lið gríðarsterk.