30 ágú. 2006Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, kaus sér nýjan forseta á ársþingi sínu í Tókýó í Japan um helgina. Fyrir valinu varð hinn 64 ára gamli Ástrali Bob Elphinston um mun hann gegna embættinu til ársins 2010. Elphinston tekur við af Carl Men Ky Ching frá Hong Kong sem verið hefur forseti sambandsins undafarin 4 ár. Aðildarríki FIBA eru 212 talsins.