27 ágú. 2006Íslenska karlalandsliðið tapaði með 12 stigum, 63-75, fyrir Svíum í lokaleik sínum á æfingamóti í Alkmaar í Hollandi í gær. Íslenska liðið endaði þar með í þriðja sæti á mótinu, vann Belgíu en tapaði fyrir Hollandi og Svíþjóð. Það var einkum slæmur annar leikhluti sem fór með leikinn hjá íslenska liðinu gegn Svíum en hann tapaðist 9-23 eftir að íslenska liðið hafði verið 19-14 yfir eftir 1. leikhlutann. Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 12 stig. Sigurður Ingimundarson, þjálfari íslenska liðsins, dreifði spilatímanum á íslenska hópinn í leiknum við Svía og enginn í liðinu spilaði í meira en 21 mínútu. Íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega og kom sér síðan aftur inn í leikinn í fjórða leikhlutanum eftir að hafa tapað 2. og 3. leikhluta með 21 stigi (26-47). Það er stutt á milli leikja og strax eftir leik lagði íslenski hópurinn á stað til Dublin í Írlandi þar sem liðið spilar við Norðmenn í dag og síðan heimamenn á morgun. Það eru tveir síðustu æfingaleikir liðsins fyrir Evrópukeppnina. Stig Íslands í leiknum við Svía: Jón Arnór Stefánsson 12 Fannar Ólafsson 10 Logi Gunnarsson 9 Jakob Sigurðarson 8 Helgi Már Magnússon 8 Brenton Birmingham 4 Hlynur Bæringsson 3 Páll Axel Vilbergsson 3 Friðrik Stefánsson 3 Magnús Þór Gunnarsson 2 Kristinn Jónasson 1 Egill Jónasson skoraði ekki í leiknum. Jón Norðdal Hafsteinsson lék ekki með vegna meiðsla. Stig íslenska liðsins á æfingamótinu í Hollandi: Leikirnir Ísland-Holland 91-94 Ísland-Belgía 92-88 Ísland-Svíþjóð 75-63 Stigin Logi Gunnarsson 46 Magnús Þór Gunnarsson 43 Jakob Sigurðarson 32 Brenton Birmingham 24 (2 leikir) Jón Arnór Stefánsson 22 (2 leikir) Hlynur Bæringsson 22 Fannar Ólafsson 19 Helgi Már Magnússon 17 Friðrik Stefánsson 12 Páll Axel Vilbergsson 5 Jón Norðdal Hafsteinsson 3 (2 leikir) Kristinn Jónasson 1 Egill Jónasson skoraði ekki á mótinu