26 ágú. 2006Argentínumenn, Spánverjar, Tyrkir og Litháar eru komnir áfram í 8 liða úrslit heimsmeistaramótsins í körfuknattleik. Fjórir leikir voru leiknir í dag en hinir fjórir munu fara fram á morgun. Argentínumenn áttu ekki í miklum vandræðum með að sigra gegn Nýsjálendingum. Leikurinn endaði 79-62 fyrir Argentínu og skoraði Manu Ginobili 28 stig í leiknum. Spánn byrjaði vel gegn Serbíu/Svartfjallalandi og náðu þeir að halda forystunni allan leikinn. Pau Gasol var með 19 stig og 16 fráköst fyrir Spánverja. Tyrkir sigruðu Slóvena í hörkuleik þar sem að Erkan Serdokan skoraði 15 af 24 stigum sínum í fjórða leikhluta. Litháen bar sigurorð af Ítalíu 71-68. Ítalirnir klikkuðu á 5 vítum á lokasekúndunum og misstu þar með af sæti í átta liða úrslitunum. Í næstu umferð mæta Argentínumenn Tyrkjum og Spánverjar leika gegn Litháum. Á morgun lýkur 16 liða úrslitunum. Hægt verður að fylgjast með gangi mála á [v+]http://www.fiba.com[v-]heimasíðu mótsins[slod-].