23 ágú. 2006Lyfjaeftirlitsnefnd mætti fyrir skömmu á æfingu karlalandsliðsins og tók leikmenn liðsins í lyfjapróf. Niðurstöður eru nú komnar úr prófinu, sem reyndist neikvætt hjá öllum leikmönnunum. Prófin voru tekin skömmu áður en liðið hélt á NM í Finnlandi. Landsliðsmenn, sem og allir aðrir leikmenn, geta átt von á lyfjaeftirliti án fyrirvara á æfingum eða í keppni hvenær sem er.