21 ágú. 2006Þau gleiðitíðindi hafa borist úr höfuðstöðvum RÚV að Sjónvarpið mun sýna beint frá HM í körfubolta í Japan helgina 2.-3. september. Sýndir verða undanúrslitaleikirnir 2. september og bronsleikurinn og úrslitaleikurinn 3. september. Mótið, sem hófst á laugardag, hefur farið vel af stað og nokkur óvænt úrslit hafa litið dagsins ljós. Nánar um úrslit helgarinnar síðar. Til hamingju körfuboltaáhugamenn og takk fyrir RÚV.