18 ágú. 2006Á morgun laugardaginn 19. ágúst leika strákarnir gegn Portúgal um hvort liðið verður annað af þeim tvemur sem falla í B-deild. Leikurinn hefst klukkan 14:30 að íslenskum tíma. Þrátt fyrir sex tapleiki á EM á spáni eru strákarnir að undirbúa sig fyrir úrslitaleik á morgun. Leikur númer sjö og sker hann úr um hvort að Ísland verði áfram á meðal þeirra bestu, eða falli niður í B-deildina. Mótherjarnir á morgun eru Portúgal og hafa þeir sigrað einn leik og tapað fimm, þeir sigruðu Þjóðverja í hörkuleik og tryggðu sér þar með þriðja sætið í H-riðli og mæta því Íslensku strákunum á morgum í úrslitaleik um hvort liðið heldur sér í A-deild. Í hinum leiknum eru það Þjóðverjar og Slóvenar sem leika einnig um hvort liðið heldur sér í A-deild. Stemmningin í hópnum er góð og ætla menn að fórna sér í verkefni morgundagsins, hægt verður að fylgjast með leiknum á [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/en/[v-]FIBAEUROPE.COM[slod-] Hjörtur Halldórsson og Pétur Þór Jakobsson ætla báðir að leika á morgun þrátt fyrir meiðsli sín og er það mikilvægt fyrir liðið. Arnþór Freyr Guðmundsson er tilbúinn fyrir leikinn, en hann snéri sig lítlilega á móti Slóveníu. Í B-deildinni leika Tékkland og Búlgaría annarsvegar og hinsvegar Georgía og Austurríki til úrslita um hvaða tvö lið fara uppí A-deild að ári. Hægt er að fylgjast með öllum úrslitum á [v+]http://www.fibaeurope-u16men.com/enDivB/[v-]slóð mótsins[slod-]