18 ágú. 2006Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari dæmir á morgun leik Spánverja og Króata í undanúrslitum A-deildar U16ka, en þetta er annað árið í röð þar sem Sigmundur dæmir leik í undanúrslitum A-deildar U16ka. Sigmundur hefur staðið sig mjög vel á Spáni, en eins og sagt var frá á kki.is fyrir nokkru, þá dæmdi hann opnunarleik mótsins í beinni útsendingu í spænska ríkissjónvarpinu. Eftir riðlakeppnina hefur hann að mestu dæmt leiki í efri hluta keppninnar og hefur greinilega staðið fyrir sínu. Meðdómarar Sigmundar á morgun eru Kestuis Pilipauskas frá Litháen og David Chambon frá Frakklandi. Að sögn Sigmundar hefur verið troðið út úr dyrum á öllum leikjum spænska liðsins, og má búast við að svo verði á morgun. Alls eru 24 FIBA dómarar staddir á mótinu og er það því mikill heiður fyrir Sigmund að fá úthlutað leik í undanúrslitum.