17 ágú. 2006Nú eru liðin sem keppa á HM í Japan búin að tilkynna leikmannahópana sem munu spila á mótinu, en það hefst eftir aðeins 2 daga. Ljóst er að þarna munu margar stjörnur mæta til leiks og má búast við mjög spennandi keppni. Það hefur sjaldan verið eins erfitt að spá fyrir um hvaða lið eigi eftir að standa uppúr á mótinu. Á [v+]http://www.fiba2006.fiba.com/pages/eng/fe/06_wcm/vide/teamVide.asp[v-]vef mótsins[slod-] má finna fréttir af liðunum og einnig er hægt að skoða stutt myndbrot frá öllum liðunum sem að taka þátt.