10 ágú. 2006Logi Gunnarsson var valinn í úrvalslið NM 2006 í Tampere en sex leikmenn eru valdir í úrvalsliðið. Logi Gunnarsson stóð sig afar vel með íslenska liðinu á mótinu og er vel að valinu kominn en Logi var stigahæstur í íslenska liðinu með 13,75 stig að meðaltali. Leikmenn úrvalsliðs NM 2006: Logi Gunnarsson, Ísland Kenny Grant, Svíþjóð Bilal Clarance, Danmörk Kimmo Muurinen, Finnland Ronny Karlsen, Noregur Mickael Lindquist, Svíþjóð, sem jafnframt var valinn mikilvægasti leikmaður NM.