10 ágú. 2006Dregið hefur verið í riðla í Evrópukeppni félagsliða, en þrjú íslensk félag taka þátt í keppnunum að þessi sinni. Íslandsmeistarar UMFN karla, Íslandsmeistarar Hauka kvenna og karlalið Keflavíkur. UMFN og Keflavík taka þátt í áskorendabikarkeppninni, EuroCup Challange, en alls taka 16 lið þátt í þeirri keppni. UMFN lenti í C-riðli og mætir þar Cherkasy frá Úkraínu, Samara frá Rússlandi og Tartu Rock frá Eistlandi. Keflavík dróst í D-riðil ásamt Dnipro frá Úkraínu, Mlekarna Kunin frá Tékklandi og Norrköping frá Svíðþjóð. Suðurnesjaliðin leika fyrst á útivelli 8. og 9. nóvember, en fyrstu heimaleikir liðanna verða 16. og 17. nóvember. Haukarstelpurnar, sem taka þátt í Evrópukeppni í annað sinn, lentu aftur á móti félögum frá Frakklandi, Spáni og Ítalíu eins og í fyrra. Mótherjar þeirra í F-riðli Evrópubikarkeppni kvenna, EuroCup Women, verða Montpellier frá Frakklandi, Gran Canaria frá Spáni og Lavezzini Parma frá Ítalíu. Haukar hefja leik á heimavelli 9. nóvember. Nánar um Evrópukeppnir félagsliða á [v+]http://www.fibaeurope.com[v-]vef FIBA Europe[slod-] og á vefjum félaganna.