8 ágú. 2006Stjórn KKÍ hefur ráðið Odd Jóhannsson til starfa sem íþróttafulltrúa á skrifstofu sambandsins. Oddur er íþróttakennari að mennt og hefur starfað sem íþróttakennari við Álftanesskóla undafarin ár. Oddur hefur einnig þjálfað og spilað körfuknattleik. Stjórn KKÍ býður Odd velkominn til starfa á skrifstofuna.