4 ágú. 2006Stelpurnar í 16 ára landsliði kvenna leika í dag sinn fyrsta leik á Evrópumótinu i Jyvaskyla í Finnlandi þegar íslenska liðið mætir gestgjöfum Finna klukkan 17.15 að íslenskum tíma. Það verður hægt að fylgjast með gangi mála í leikjunum hér á kki.is en stelpurnar eru síðan sjálfar með bloggsíðu þar sem má lesa meira um það sem gerist utan vallar. Þetta er skemmtilegur og lifandi hópur sem er duglegur að skemmta sér og öðrum innan sem utan vallar og því vel þess virði að heimasækja síðuna og lesa um uppátæki stelpnanna. Stelpurnar hafa þegar sagt frá hvernig ferðalagið gekk fyrir sig þar sem að þær hittu meðal annars knattspyrnustjörnuna Diego Maradona og í nýjasta pistlinum má lesa um það að íslenska kvennalandsliðið í körfubolta sé alveg stútfullt af poppstjörnum. [v+]http://www.blog.central.is/u16[v-]Bloggsíða[slod-] stelpnanna er á slóðinni "http://www.blog.central.is/u16" og auk frétta úr ferðinni ætla stelpurnar einnig að setja inn myndir á síðuna. Það eru þegar komnar inn nokkrar myndir þegar þessi orð eru skrifuð og von á fleirum þar á meðal mynd af þeim með sjálfum Maradona.