3 ágú. 2006Svíar unnu Íslendinga 69-81 á NM karla í Finnlandi í dag. Svíar voru þremur stigum yfir eftir þrjá leikhluta, staðan varr 51-54. Ísland var 19-18 yfir gegn eftir 1. leikhluta, en Svíþjóð var yfir í hálfleik 32-34. [v+]http://www.koris.net/mp/db/file_library/x/IMG/105640/file/20060803_ISL-SWE.pdf[v-]Tölfræði leiksins[slod-] Íslenska liðið byrjaði með látum og voru fyrstu fjórar körfur liðsins þriggja stiga skot og komst Ísland í 12-4 en þá tóku svíar við sér og skoruðu nokkrar körfur í röð. Íslenska liðið leiddi 19-18 eftir 1. leikhluta. Svíar náðu siðan forystu í 2. leikhluta en Friðrik Erlendur Stefánsson varð að fara af velli í upphafi 2. lekhluta með 3 villur. Ísland átti síðast skot fyrri háfleiks en skotið geigaði og Svíar leiddu 32-34 í hálfleik. Svíar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og náðu tíu stiga forystu um miðbik 3. leikhlutans sem þeir héldu nokkurn veginn út leikhlutann. Forysta Svía hélt nokkuð í 4. fjórðungi en munurinn fór minnst í fjögur stig, en Ísland náði ekki að komast nær. Annan leikinn í röð vantaði herslumuninn til að Íslands jafnaði en allt kom fyrir ekki, tap gegn Svíum 65-81 var staðreynd. Sigurður Ingimundarson, þjálfari telur að liðið eigi mikið inni, því þrátt fyrir ágæta kafla í þeim tveimur leikjum sem eru búnir þarf liðið að ná að spila heilan leik vel; "Svíar voru ákveðnari mestallan leikinn og spiluðu mjög góða og fasta vörn. Við hefðum mátt spila lengri sóknir á köflum og flæðið í sókninni er eitthvað sem við þurfum að laga. Þetta eru hlutir sem við munum laga í næstu leikjum gegn Noregi og Danmörku". Næsti leikur er gegn Noregi á morgun kl. 13.30 að íslenskum tíma. Helstu tölur úr leiknum: Logi Gunnarsson 24 stig, 3 fráköst, 4 stoðsendingar Páll Axel Vilbergssob 17 stig, 6 fráköst Hlynur Bæringsson 6 stig, 4 fráköst, 5 villur Jakob Sigurðarson 8 stig, 4 fráköst, 1 stoðsending Magnús Þór Gunnarsson 3 stig, 2 fráköst, 1 stoðsending Jón Nordal Hafsteinsson 3. stig, Sigurður Þorvaldsson, 3 stig, 2 fráköst Friðrik Erlendur Stefánsson, 2 stig, 4 fráköst, 5 villur Egill Jónasson 1 stig, 4 fráköst, 4 varin skot aðrir sem spiluðu voru Arnar Freyr Jónsson og Helgi Magnússon.