27 júl. 2006Stelpurnar í 18 ára landsliðinu töpuðu með tveimur stigum fyrir Portúgal, 58-60, í öðrum leik sínum í úrslitariðlinum á evrópumótinu í Chieti á Ítalíu, eftir að hafa haft forustuna nánast allan leikinn. Ísland átti boltann þegar fjórar sekúndur voru eftir og brotið var á Helenu Sverrisdóttur í 3ja stiga skoti. Dómararnir dæmdu villu en gàfu ekki skot og flautuðu þess í stað leikinn af íslenska hópnum til mikillar furðu. Helena Sverrisdóttir var stigahæst með 19 stig þar af öll 8 stig íslenska liðsins í fjórða leikhlutanum. Ísland hafði forustuna nánast allan leikinn, komst í 7-0, leiddi, 19-15, eftir fyrsta leikhluta og hafði sex stiga forustu í hálfleik, 33-27. Portúgal minnkaði muninn í tvo stig í upphafi seinni hálfleiks en góður 13-4 kom íslenska liðinu 11 stigum yfir, 50-39, þegar 1:30 var eftir af þriðja leikhluta. Þa tók við mjög slæmur kafli þar sem íslenska liðið skoraði ekki í heilar sjö mínútur. Portúgalar, minnkuðu muninn í sjö stig, 50-43, fyrir leikhlutaskiptin og komust loks yfir 50-52 þegar 4:30 voru eftir af leiknum. Við tóku siðan æsispennandi mínútur þar sem liðin skiptust á að skora en Portúgalir voru þó alltaf fyrri til að komast yfir. Portúgalir skoruðu sigurkorfuna 4 sekúndum og 74 sekúndubrotum fyrir leikslok og Unndór Sigurðsson þjálfari tók strax leikhlé. Íslenska liðið tók boltann inn á miðjunni, Helena Sverrisdóttir fékk boltann og reyndi 3ja stiga skot en það var brotið á henni og villa dæmd. Dómarinn gaf fyrst tvo skot en hætti síðan við þar sem hann taldi að íslenska liðið hafði verið komið í bónus. Íslenski hópurinn mótmælti ákaft en ákvörðuninni var ekki haggað og Portúgölsku stelpurnar fögnuðu sigri. Ísland hefur þar með tapað þremur leikjum í röð gegn Portúgal með tveimur stigum hjá 18 ára landsliði kvenna og allir hafa þeir verið spilaðir á einu ari. Íslenska liðið tapaði tvisvar fyrir Portúgal og Evrópumótinu í Bosniu í fyrra. Allir hafa þessir leikir þróast eins, íslenska liðið með forustuna allan tímann en Portúgal hefur siðan ávallt stolið sigrinum í lokin. Atkvæðamestar í íslenska liðinu: Helena Sverrisdóttir 19 stig (10 fráköst, 8 stoðsendingar) Ingibjorg Elva Vilbergsdóttir 12 stig Bryndís Guðmundsdóttir 10 stig (8 fráköst, 3 stoðsendingar) Sigrún Ámundadóttir 7 stig (9 f fráköst, 3 stolnir) Margrét Kara Sturludóttir 6 stig (11 fráköst, 3 stoðsendingar) María Ben Erlingsdóttir 4 stig Næsti leikur er gegn Makedóníu í dag klukkan 15.15 að íslenskum tima en síðan tekur við frídagur áður en stelpurnar spila tvo síðustu leikina við Finna og Íra.