26 júl. 2006Friðrik Ingi Rúnarsson var kynntur sem aðstoðarlandsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í körfuknattleik á blaðamannafundi KKÍ fyrr í dag. Friðrik Ingi er körfuknattleiksáhugamönnum vel kunnur bæði sem fyrrum landsliðsþjálfari og þjálfari félagsliða. KKÍ býður Friðrik Inga velkominn til starfa og væntir góðs af störfum hans!