23 júl. 2006U20 ára liðið stóð í Hollandi og leiddi stóran hluta fyrri hálfleiks. Smá einbeitingarleysi í lok annars leikhluta kostaði að Ísland var 3 stigum undir í hálfleik. Allt annað var að sjá leik okkar manna í þessum leik eða opnunarleik mótsisn sem var líka má móti Hollandi. Ísland leiddi 30-22 í byrjun annars leikhluta en var undir 43 - 46 í hálfleik. Eftir þriðja leikhluta var Ísland einungis 2 stigum undir 71 – 73. Breiddin var meiri hjá Hollendingum og náðu þeir að vera með ferskari fætur inná vellinum í lokin. Sem fyrr var Jóhann stigahæstur með 34, Pavel með 25, Kristján með 17, Alexander með 6 og Vésteinn með 5. Jóhann og Pavel voru með sín 8 fráköstin hvor og Pavel var með 6 stoðsendingar að auki. Næsti leikur Íslands hér í Portúgal verður í dag kl. 12:30 á íslenskum tíma og er hann gegn Svíþjóð.