18 júl. 2006Þær fréttir bárust í síðustu viku að Einar Einarsson, körfuknattleiksdómari til margra ára, hefði slasast alvarlega er hann féll við veiðar í Djúpavatni. Einar brotnaði á 7. hálslið og var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann gekkst undir aðgerð tveimur dögum síðar. Góðu fréttirnar eru þær að hann hefur mátt í öllum líkamanum, en ljóst er að ekki mátti miklu muna að enn verr færi. Nánari fréttir má finna á vef KKDÍ og þar er búið að setja upp gestabók fyrir þá sem vilja senda Einari kveðjur.