13 júl. 2006U20 ára landsliðið er í góðu yfirlæti í Portúgal. Hótelið er fínt og maturinn góður. Leikstaðurinn er ekki af verri endanum, tvær samliggjandi hallir í Lissabon rétt við hliðina á 60 þúsund sæta fótboltavelli Benfica knattspyrnuliðsins. Minni höllin tekur 2000 manns í sæti en sú stærri 2500. Mótið er í beinni útsendingu á netinu í gegnum [v+]http://www.fibaeurope.com[v-]heimasíðu FIBAEurope[slod-], bein tenging á heimasíðu [v+]http://www.fibaeurope-u20men.com/enDivB/[v-]mótsins[slod-]. Á þessum síðum verða leikirnir uppfærðir í textaformi á nokkurra sekúndna fresti og er gaman að fylgjast með leikjunum þar. Adolf Hannesson frá Borgarnesi er ekki bara að spila í fyrsta sinn í íslenska landsliðsbúningnum heldur er hann að fara í sínu fyrstu utanlandsferð og náði ljósmyndari ferðarinnar mynd af hans fyrsta körfuboltaskoti á erlendri grundu.