10 júl. 2006Það verður mikið fjör á Ásvöllum í kvöld þegar stelpurnar í 16 ára og 18 ára liðunum mætast í sérstökum ágóðaleik. Stelpurnar eru þessa daganna að safna fyrir ferðum sínum út á Evrópumótin sem hefjast á næstu vikum. Það ekki nóg með að stelpurnar ætli sjálfar að bjóða í körfuboltaveislu þá verður öllum gestum leiksins boðið í glæsilega grillveislu. Alls eru 22 stelpur í landsliðunum tveimur og allar treysta þær á að þessum ágóðaleik verði vel tekið hjá körfuknattleiksáhugafólki. Þetta er sannarlega efni í skemmtilega og gefandi kvöldstund. Það er ekki nóg með að stelpurnar fórni sumrinu í stífar og strangar æfingar þær þurfa líka að borga hluta af ferðakostnaðinum sjálfar. Það kæmi sér því afar vel að fá góðan stuðning og vonast stelpurnar því eftir góðri mætingu á leikinn. 18 ára liðið er á leiðinni til Ítalíu í seinni hluta þessa mánaðar og 16 ára liðið spilar sína leiki í Finnlandi í fyrri hluta ágústmánuðar. - Dagskráin er klár - Þú mætir á Ásvelli í kvöld klukkan 18.00, greiðir 1.500 krónur í aðgangseyri (500 krónur fyrir börn 12 ára og yngri), horfir á stelpurnar og eftir leikinn verður grillað og allir fara saddir og sælir heim. Þú getur líka styrkt stelurnar með framlagi ef þú af einhverjum ástæðum kemst ekki á leikinn. Þá skrárir þú bara nafnið þitt [v+]http://www.haukar-karfa.is/asp/skraning/u1618.asp[v-]hér[slod-] og haft verður samband við þig.