25 jún. 2006Eins og áður hefur fram komið er mikið framundan hjá karlalandsliðinu í sumar. Fyrst Norðurlandamótið, síðan mót í Hollandi og áður en Evrópukeppnin hefst er líklegt að tekið verði þátt í stuttu móti á Írlandi í ágústlok. Æfingar hafa þegar hafist hjá liðinu en þær munu vara út júnímánuð. Síðan verður um 10 daga sumarfrí og svo hefst törnin fyrir alvöru fyrir miðjan júlímánuð. Á þeim tímapunkti verður hópurinn minnkaður og nýr aðstoðarþjálfari mun taka til starfa, en ljóst er að Friðrik Ragnarsson mun ekki aðstoða Sigurð áfram. Ástæða þess er sú að Friðrik hefur tekið að sér aukin störf í vinnu sinni og hefur ekki nægan tíma. Aðstoðarþjálfarinn nýi verður kynntur til leiks fljótlega í júlí. Sem stendur er hópurinn samsettur úr eftirfarandi leikmönnum: Arnar Freyr Jónsson, Keflavík Axel Kárason, Skallagrímur Brenton Birmingham, Njarðvík Brynjar Björnsson, KR Egill Jónasson, Njarðvík Fannar Freyr Helgason, IR Fannar Ólafsson, KR Friðrik Stefánsson, Njarðvík Halldór Örn Halldórsson, Keflavík Helgi Magnússon, Boncourt, Sviss Hlynur Bæringsson, Woon! Aris, Hollandi Hörður Axel Vilhjálmsson, Fjölni Jakob Sigurðarson, Bayer Leverkusen, Þýskalandi Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík Jón Arnór Stefánsson, Carpisa Napoli, Ítalíu Jón Norðdal Hafsteinsson, Keflavík Logi Gunnarsson, Bayreuth, Þýskalandi Magnús Gunnarsson, Keflavík Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Pavel Ermolinski, Unicaja Malaga, Spáni Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Keflavík Sigurður Þorvaldsson, Snæfell Þorleifur Ólafsson, Grindavík Þessi hópur stundar nú æfingar undir leiðsögn Sigurðar landsliðsþjálfara og úr þessum hópi verður endanlegt lið valið sem tekur þátt í verkefnum sumarsins. Hrannar Hólm formaður landsliðsnefndar