8 jún. 2006Sigmundur Már Herbertsson, FIBA dómari, fór í morgun til Kanaríeyja á námskeið ætlað efnilegum FIBA dómurum. Sigmundur var valinn af FIBA til að sækja námskeiðið og er það talsverður heiður að fá að sækja námskeiðið. Hann mun njóta handleiðslu Miguel Betancor, en stór hluti námskeiðsins verður helgaður þriggja dómara kerfinu.