7 jún. 2006Fyrri elítubúðir KKÍ í sumar verða haldnar um næstu helgi, 10.-11. júní, í íþróttahúsi Seljaskóla, en ekki í Austurbergi eins og áður hefur verið tilkynnt. Síðari búðirnar verða helgina 26.-27. ágúst. Elítahóparnir eru undanfari yngri landsliða Íslands. Í ár eru búðirnar fyrir stráka sem fæddir eru 1993-1995 og stelpur fæddar 1992-1994. Félögin hafa tilnefnt efnilega krakka í búðirnar og KKÍ hefur sent þeim öllum bréf. Strákar dæddir 1994-1995 munu æfa kl. 9 - 11 báða dagana, en strákar fæddir 1993 munu æfa kl. 11:30 - 13:30 báða dagana. Æfingar stelpnanna verða kl. 14:30 - 16:30 báða dagana. Verð í búðirnar er kr. 4.000 sem greiðist í upphafi búðanna á laugardaginn. Ítrekað er að búðirnar verða í íþróttahúsi Seljaskóla, en ekki í Austurbergi eins áður hefur verið tilkynnt.