30 maí 2006Dr. László Németh var kjörinn forseti ungverska körfuknattleikssambandsins á þingi sambandsins í gær. László er sem kunnugt er fyrrum landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari KR í úrvalsdeildinni. Síðustu ár hefur László verið landsliðsþjálfari Englands, en nú er hann kominn baka til heimalands síns, Ungverjalands. Kjörtímabili hans líkur árið 2011. KKÍ óskar László Németh til hamingju með nýja embættið.