29 maí 2006Íslenski hópurinn sem var á NM er nú kominn heim, eftir sex daga veru í Svíaríki. Hópurinn stóð sig með mikilli prýði og var landi og þjóð til sóma. Íslensku liðin stóðu sig frábærlega, bæði innan sem utan vallar. Eins og vant er vöktu nokkrir leikmenn íslensku liðanna athygli fyrir vasklega framgöngu, en þar fer Hörður Axel Vilhjálmsson fremstur í flokki, en Hörður lék frábærlega á Norðurlandamótinu og átti stóran þátt í sigri í úrslitaleiknum, þrátt fyrir að hafa meiðst illa á ökkla í fyrsta leikhluta. Næstu verkefni unglingalandsliðanna eru í sumar, þegar 16 og 18 ára landslið kvenna taka þátt í B-deild Evrópumótsins og 16 og 18 ára landslið karla taka þatt í A-deild Evrópumótsins. Auk þess fer 20 ára landslið karla til keppni í B-deild.