27 maí 2006Í dag, sunnudag, leika íslensku unglingalandsliðin þrjá leiki. 18 ára landsliðin leika til úrslita og 16 ára landslið karla leikur um bronsið. 18 ára landslið karla ríður á vaðið þegar þeir mæta Svíum í úrslitum kl. 9:30 að íslenskum tíma. Ísland vann Svíþjóð með tveggja stiga mun í spennuþrungnum fyrsta leik mótsins á miðvikudag, 86-84. Svíar stefna væntanlega á að hefna ófaranna, en íslensku strákarnir ætla að verja Norðurlandameistaratitil sinn. 18 ára landslið kvenna leikur kl. 11:15, strax að loknum leik 18 ára liðanna. Aftur eru það Svíar sem stúlkurnar spiluðu við, en þær unnu nokkuð öruggan sigur á sænsku stúlkunum á fyrsta degi mótsins, 71-64. Eins og strákarnir, ætla stúlkurnar sér að verja Norðurlandameistaratitil sinn. 16 ára landslið drengja mætir Noregi í leiknum um bronsið, en liðin mættust í hörkuleik í gær, sem íslensku strákarnir unnu 72-67. Það má því búast við hörkuleik um bronsið.