27 maí 2006Íslensku unglingalandsliðin léku alls fimm leiki í dag, hér að neðan er að finna myndir úr leikjunum.

Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari 16 ára landsliðs kvenna fer yfir málin í leiknum gegn Noregi

Alma Rut Garðarsdóttir sækir að körfunni gegn Noregi

Þorgrímur Guðni Björnsson í baráttu undir körfunni gegn Dönum

Ingibjörg Jakobsdóttir reynir körfuskot gegn Noregi

Íslendingar fengu óblíðar móttökur gegn 18 ára karlalandsliði Dana. Hjörtur Hrafn Einarsson fær hér að finna fyrir því

Brynjar Björnsson sækir hér að körfu Dana

Guðný Gígja Skjaldardóttir sækir hér að körfu Norðmanna

Finnsku 16 ára stelpurnar spiluðu fast á móti þeim Íslensku. Hafrún Hálfdánardóttir sækir hér að körfu Finna

Helena Brynja Hólm gerir sig líklega til að skora gegn Finnum

Hjörtur Hrafn Einarsson sækir að körfu Dana

Alma Rut Garðarsdóttir átti mjög góðan leik gegn Finnlandi, hér sækir hún að körfu Finna

Hörður Axel Vilhjálmsson hefur vakið athygli fyrir góðan leik á NM. Hér sækir hann að körfu Dana

Lilja Ósk Sigmarsdóttir var ákveðin gegn Finnum

Snorri Páll Sigurðsson sýndi loks hvers hann er megnugur í dag, hér er hann kominn fram hjá varnarmanni Dana

Klara Guðmundsdóttir hefur verið mjög ákveðin í öllum leikjunum, hér reynir hún að komast fram hjá varnarmanni Norðmanna

Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir hefur leikið vel, hér er hún í baráttu undir körfunni gegn Finnlandi

Klara Guðmundsdóttir er ekki þekkt fyrir annað en fádæma baráttu og mikinn vilja, hér hefur hún betur í baráttu um boltann og það ekki í fyrsta skipti

Ingibjörg Jakobsdóttir sækir að körfu Finna

Kolla sjúkraþjálfari hefur sem betur fer ekki þurft að dytta að miklum meiðslum. Hér kælir hún niður Þröst Jóhannsson og Brynjar Björnsson, leikmenn 18 ára liðsins

Kristín Fjóla Reynisdóttir á leið að körfunni gegn Finnum

María Ben Erlingsdóttir fór illa með finnsku vörnina í dag, hér er hún einu sinni sem oftar að spæla finnsku varnarmennina

Ragna Margrét Brynjarsdóttir í baráttu um boltann gegn Noregi

Lilja Ósk Sigmarsdóttir komin fram hjá sínum varnarmanni gegn Finnum

Ingibjörg Jakobsdóttir sækir að körfunni gegn Noregi

Alma Rut Garðarsdóttir gegn Finnlandi

Hafrún Hálfdánarsdóttir, fyrirliði 16 ára liðs kvenna, er vel tekið þegar henni er skipt útaf gegn Noregi
Myndir: Snorri Örn Arnaldsson