26 maí 2006Íslensku landsliðin unnu öll leiki sína áðan á Norðurlandamóti unglinga í Svíþjóð. 18 ára lið karla vann 95-94 sigur á Dönum, 18 ára lið kvenna vann 86-67 sigur á Finnum og 16 ára lið karla vann sinn fyrsta leik a mótinu þegar strákarnir unnu 78-74 sigur á Dönum. 18 ára lið karla og kvenna hafa þar með unnið alla 3 leiki sína á mótinu og öll eiga liðin enn góöa möguleika að keppa um verðlaun hér í Svíþjóð. 18 ára lið karla vann nauman eins stigs sigur á Dönum í dag, 95-94, í leik sem var allan tímann í höndum íslenska liðsins sem náði þó aldrei að losa sig vid danska liðið sem skoraði alls 17 þriggja stiga körfur í leiknum þar á meðal lokakðrfu leiksins um leið og tíminn rann út. Íslensku strákarnir komust mest 13 stigum yfir í lok 3ja leikhluta, 76-63 en skoruðu aðeins 4 stig gegn 10 síðustu tvær mínútur leiksins sem nærri þvi nægðu danska liðin til þess að tryggja sér framlengingu. Sigur íslenska liðsins tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum þrátt fyrir að liðið eigi eftir að mæta Finnum á morgun. 18 ára lið karla Ísland-Danmörk 95-94 (26-22, 50-44, 76-63) Stig Íslands: Hörður Axel Vilhjálmsson 24 (9 stoðsendingar), Brynjar Þór Björnsson 24, Hjörtur Hrafn Einarsson 13, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 12 (9 fráköst, 4 varin), Hördur Hreiðarsson 8 (9 fráköst), Þröstur Jóhannsson 8 (10 fráköst, 3 varin), Hafþór Björnsson 2, Þórir Guðmundsson 2. Stelpurnar í 18 ára liðinu unnu sannfarandi sigur á Finnum þar sem María Ben Erlingsdóttir átti frábæran leik og skoraði 30 stig og þær Helena Sverrisdóttir (19 stig, 10 stoðsendingar, 8 fráköst) og Bryndís Guðmundsdóttir gældu báðar við þrefalda tvennu. Eftir jafnan fyrsta leikhluta (21-20) þá tók íslenska liðið öll völd í öðrum leikhluta og var komið 12 stigum yfir í hálfleik, 41-29. Íslenska liðið skoraði síðan 13 af fyrstu 15 stigum seinni hálfleiks og náði mest 23 stiga forskoti í leiknum en í lokin skildu 21 stig liðin. Stelpurnar tryggja sér sæti í úrslitaleiknum með sigri á Dönum á morgun. 18 ára lið kvenna Ísland-Finnland 86-67 (21-20, 41-29, 62-44) Stig Íslands: María Ben Erlingsdóttir 30 (5 fráköst, hitti úr 14 af 19 skotum sínum), Helena Sverrisdóttir 19 (10 stoðsendingar, 8 fráköst, 4 stolnir), Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 12 (5 stoðsendingar), Bryndís Guðmundsdóttir 10 (12 fráköst, 9 stoðsendingar, 4 stolnir), Sigrún Ámundadóttir 8 (5 fráköst), Ingibjörg Skúladóttir 2, Ragnheiður Theodórsdóttir 2, Margrét Kara Sturludóttir 1. Eftir erfiðan gærdag var kærkomið fyrir 16 ára lið karla að vinna fyrsta sigur sinn á mótinu í dag. Liðið reif sig upp eftir töp gegn Finnum og Svíum í gær og vann 4 stiga sigur á Dönum í hörkuleik, 78-74. Danska liðið var komið 9 stigum yfir, 22-13, eftir fyrsta leikhluta en góður annar leikhluti sem vannst 27-15, færði íslenska liðinu 3 stiga forskot í hálfleik, 40-37 og frumkvæðið í leiknum. Seinni hálfleikurinn var mjög spennandi. Íslensku strákarnir sýndu mikinn styrk med því að vinna síðustu tvær mínútur leiksins 8-2 og þar með leikinn með 4 stigum, 78-74. Danir höfðu 4 stiga forskot, 68-72, þegar rúmar 2 mínútur voru eftir. Þess má geta að þjálfari danska liðsins er Thomas Fjoldberg og hann þjálfaði tvo af þremur stigahæstu leikmönnum íslenska liðsins (Sigmar 22, Hjörtur 13) hjá Breiðabliki í vetur. 16 ára lið karla Ísland-Danmörk 78-74 (13-22, 40-37, 59-54) Stig Íslands: Snorri Páll Sigurðsson 22 (9 fráköst, 3 stolnir), Sigmar Björnsson 22, Hjörtur Halldórsson 13 (8 fráköst), Örn Sigurðarson 10, Þorgrímur Guðni Björnsson 5, Víkingur Ólafsson 3, Pétur Jakobsson 3.