26 maí 200616 ára lið kvenna tapaði, 46-85, fyrir Finnlandi í lokaleik sínum á Norðurlandamóti unglinga en leikurinn fór fram í kvöld. Íslenska liðið tapaði öllum fjórum leikjum sínum á mótinu og endar í fimmta og síðasta sæti. Eins stigs tapið fyrir Norðmönnum í fyrri leik dagsins hjá liðinu sá til þess að Norðmenn fá tækifæri til þess að glima við Dani í leiknum um 3. sætið á sunnudaginn. Það var margt jákvætt í leik íslenska liðsins sem var bæði að spila við besta lið mótsins sem og að leika sinn annan leik í dag. Finnar höfðu 12 stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 8-20 og voru 17 stigum yfir í hálfleik, 26-43. Besti kafli íslenska liðsins kom í öðrum leikhluta þegar stelpurnar skoruðu 8 stig í röð. Finnar byrjuðu síðari hálfleik gríðarlega vel og skoruðu 10 fyrstu stig hans og voru komnir með 31 stigs forskot, 35-66, fyrir lokaleikhlutann. Í lokin skildu síðan 39 stig á milli liðanna en leiknum lauk með sigri Finna 46-85. Alma Rut Garðarsdóttir (16 stig) og Lilja Ósk Sigmarsdóttir (11 stig) átti báðar góðan dag en annars var barátta íslenska liðsins til fyrirmyndar og stelpurnar ætluðu greinilega að enda mótið á jákvæðu nótunum. Liðið fékk dýrmæta reynslu á mótinu og stelpurnar vita það best sjálfar að þær þurfa að æfa mikið og undirbúa sig vel fyrir Evrópukeppnina seinna í sumar. 16 ára lið kvenna: Ísland-Finnland 46-85 (8-20, 26-43, 35-66) Stig Íslands: Alma Rut Garðarsdóttir 16 (5 fráköst, 4 stolnir), Lilja Ósk Sigmarsdóttir 11 (6 fráköst), Klara Guðmundsdóttir 8 (5 fráköst, 4 stolnir), Ragna Margrét Brynjarsdóttir 3 (7 fráköst, 6 varin), Helena Hólm 2, Kristín Fjóla Reynisdóttir 2, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 2.