24 maí 2006Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Átján ára landsliðið stelpna hefur leik gegn gestgjöfum Svía klukkan 16.00 í dag eða skömmu eftir að liðið kemur til Svíþjóðar. Þessar þjóðir mættust einmitt í úrslitaleik mótsins fyrir tveimur árum þegar þessar stelpur spiluðu fyrir 16 ára landslið Íslands og Svíþjóðar. 1988-árgangurinn varð Norðurlandameistari hjá 16 ára liðum fyrir tveimur árum og margir af strákunum spiluðu stór hlutverk í fyrra þegar 18 ára liðið náði 2. sætinu. Ísland hefur unnið Norðurlandameistaratitil í öllum landsliðum nema hjá 18 ára stelpum og möguleikinn hefur líklega aldrei verið meiri en einmitt núna. Fjórir leikmenn liðsins, Bryndís Guðmundsdóttir, Helena Sverrisdóttir, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir og María Ben Erlingsdóttir, munu setja leikjamet á Norðurlandamótinu með hverjum leik sem þær spila en allar hafa þær verið með síðustu þrjú ár og leikið alls 15 landsleiki á mótinu. Helena Sverrisdóttir hefur skorað 373 stig í þessum 15 leikjum eða 24,9 stig að meðaltali í leik og hún er langstiga hæsti íslenski leikmaðurinn á Norðurlandamótinu. Flestir leikmenn liðsins koma úr liði Keflavíkur eða alls sex en fimm leikmenn koma úr Íslandsmeistaraliði Hauka. Blikinn Ragnheiður Theodórsdóttir hefur síðan á síðustu tveimur árum spilað bæði með liði Keflavíkur og liði Hauka. Þessi þrjú félög eru þau einu sem eiga leikmenn í liðinu. Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Miðvikudagur 24. maí 16:00 Ísland-Svíþjóð Fimmtudagur 25. maí 14:30 Ísland-Noregur Föstudagur 26. maí 13:00 Ísland-Finnland Laugardagur 27. maí 7:00 Ísland-Danmörk Á sunnudeginum er síðan leikið um sæti 18 ára landslið kvenna á Norðurlandamótinu 2006 - Bakverðir - Bára Bragadóttir Keflavík 165 sm Helena Sverisdóttir Haukar 184 sm Hrönn Þorgrímsdóttir Keflavík 170 sm Ingibjörg Skúladóttir Haukar 168 sm Ragnheiður Theodórsdóttir Breiðablik 172 sm - Framherjar - Bára Fanney Hálfdanardóttir 180 sm Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík 180 sm Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir Keflavík 174 sm Margrét Kara Sturludóttir Keflavík 175 sm Unnur Tara Jónsdóttir Haukar 180 sm - Miðherjar - María Ben Erlingsdóttir Keflavík 182 sm Sigrún Ámundardóttir Haukar 180 sm Unndór Sigurðsson þjálfar liðið en þetta er fyrsta landsliðið sem hann þjálfar. Unndór er þjálfari kvennaliðs Grindavíkur sem varð í 2. sæti í bæði bikar og deild í vetur. 18 ára landslið kvenna á NM 2003 (1984) - 4. sæti 2004 (1985) - 4. sæti 2005 (1987) - 2. sæti Gengi 18 ára landsliðs kvenna gegn þjóðum Danmörk - (4 leikir) 1 sigur og 3 töp, 25% Finnland - (3 leikir) 1 sigur og 2 töp, 33% Noregur - (2 leikir) 1 sigur og 1 tap, 50% Svíþjóð - (4 leikir) 0 sigrar og 4 töp, 0% Samtals: 13 leikir, 3 sigrar, 10 töp, 23%