
24 maí 2006Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Átján ára landsliðið stráka hefur leik gegn heimamönnum klukkan 16.00 í dag eða stuttu eftir komuna til Svíþjóðar. Íslenska liðið spilaði einmitt úrslitaleikinn gegn Svíþjóð þegar þessi árangurinn spilaði sem 16 ára lið fyrir tveimur árum. Það er mikil reynsla hjá mörgum af leikmönnunum í 1988-árgangnum sem varð Norðurlandameistari hjá 16 ára liðum fyrir tveimur árum og margir af strákunum spiluðu stór hlutverk í fyrra þegar 18 ára liðið náði 3. sætinu. Þessir strákar hafa einnig hjálpað til að koma tveimur landsliðum (16 ára liðinu 2004 og 18 ára liðinu 2005) upp í A-deild í Evrópukeppninni. 18 ára liðið hjá strákunum hefur náð frábærum árangri undanfarin ár og verið í verðlaunasæti öll þrjú árin. Þeir Hjörtur Hrafn Einarsson (215) og Brynjar Þór Björnsson (206) hafa báðir skorað yfir 200 stig á Norðurlandamótinu og báðir líklegir til þess að komast upp fyrir Jóhann Árna Ólafsson (235) sem er sá strákur sem hefur skorað flest stig á Norðurlandamótinu. Leikmenn liðsins koma frá sjö félögum þar af eiga Fjölnir, Keflavík, Njarðvík, KFÍ og FSu öll tvo leikmenn hvert félög og FSu-leikmennirnir eru síðan upprunalega úr öðrum tveimur félögum. Félögin eru því sameinast um að leggja til leikmenn til hins sterka 1988-árgangs. Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Miðvikudagur 24. maí 16:00 Ísland-Svíþjóð Fimmtudagur 25. maí 8:30 Ísland-Noregur Föstudagur 26. maí 11:00 Ísland-Danmörk Laugardagur 27. maí 13:00 Ísland-Finnland Á sunnudeginum er síðan leikið um sæti 18 ára landslið karla á Norðurlandamótinu 2006 - Bakverðir -











