
24 maí 2006Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Sextán ára landsliðið stelpna hefur leik gegn Dönum klukkan 18.00 í kvöld eða kvöld sama dags og liðið kemur til Svíþjóðar. Það verður nóg að gera hjá stelpunum fyrstu þrjá daganna því liðið spilar meðal annars tvo leiki á föstudaginn, klukkan 7.00 um morguninn að íslenskum tíma gegn Noregi og tólf tímum síðar spilar liðið síðan við Finna. Fimm leikmenn liðsins voru með 16 ára landsliðinu í fyrra, Grindvíkingarnir Alma Rut Garðarsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir, Haukastúlkurnar Kristín Fjóla Reynisdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Hamarsstúlkan Hafrún Hálfdánardóttir. Kristín Fjóla var bara með í evrópukeppninni en hinar fjórar léku alla þrettán leiki 16 ára liðsins síðasta sumar. Liðið er án Írisar Sverrisdóttur, sem var fyrirliði 16 ára liðsins í fyrra en er enn að ná sér af erfiðum hnémeiðslum. Flestir leikmenn liðsins koma frá Haukum eða alls fjórar stelpur en þrír leikmenn koma frá Íslandsmeistaraliði Grindavíkur. Alls eiga sjö félög leikmenn í liðinu. Leikir liðsins: (Íslenskur tími) Miðvikudagur 24. maí 18:00 Ísland-Danmörk Fimmtudagur 25. maí 16:30 Ísland-Svíþjóð Föstudagur 26. maí 7:00 Ísland-Noregur Föstudagur 26. maí 19:00 Ísland-Finnland Á sunnudeginum er síðan leikið um sæti 16 ára landslið kvenna á Norðurlandamótinu 2006 - Bakverðir -












