12 maí 2006Laugardagsmorguninn 13. maí funda farastjórar, þjálfarar og unglinganefnd KKÍ með foreldrum þeirra krakka sem eru að fara á Norðurlandamótið í Stokkhólmi síðar í þessum mánuði. Fundurinn verður í sal E í íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl. 10:30. strax á eftir eða kl. 11:30 er blaðamönnum boðið að koma og hitt akrakkana og þjálfara þeirra. Norðurlandamótið fer nú alltaf fram á sama stað, í Solna í Stokkhólmi. Þetta fjórða árið sem þessi háttar er hafður á og hefur hann reymst einkar vel. Veg og vanda að skipulagningu mótsins hefur heimaliðið Solna Vikings sem staðið hefur sig með sóma. Mótið fer nú fram dagana 24.-28. maí. Þjálfarar íslensku liðanna hafa nú valið þá 12 leikmenn sem skipa liðin, en sem kunnugt er þá er leikið í fjórum flokkum, U-16 og U-18 ára karla og kvenna. Liðsskipanin hefur verið birt hér á vefnum, en á meðan á mótinu stendur verða settar inn fréttir eins fljótt eftir leiki og hægt er og eins þegar eitthvað sérstakt er að frétta af hópnum.