9 maí 2006Ólafur Rafnsson, fyrrum formaður KKÍ og núverandi forseti ÍSÍ, var sæmdur gullmerki KKÍ á ársþingi sambandsins um síðustu helgi. Við sama tækifæri var Stefáni Arnarsyni einnig veitt gullmerki KKÍ. Fjögur silfurmerki voru einnig veitt á ársþinginu. Þau hlutu Guðni Guðnason, Kristinn G. Kristinsson, Ragnar Torfason og Guðbjörg Norðfjörð. Á lokahófi KKÍ í lok apríl voru einnig veitt heiðursmerki. Gullmerki hlutu þá Ágúst Jóhannesson og Elínborg Guðnadóttir. Silfurmerki voru einnig tvö, en þau hlutu Birgir Hákonarson og Gunnar Freyr Steinsson.