6 maí 2006Ársþing KKÍ hófst í Rimaskóla í Grafarvogi í morgun. Eftir formleg þingstörf var tillögum sem fyrir þinginu lágu vísað til nefnda. Nefndastörfum er nú nýlokið og þingið hefst á ný kl. 10:00 á sunnudagsmorgun. Þá munu álit nefnda liggja fyrir og greidd verða atkvæði um hin einstöku mál. Síðan verður kjör formanns, stjórnar og hinna ýmsu nefnda sambandsins, auk annarra mála. Ræðu formanns KKÍ, Hannesar Sigurbjörns Jónssonar við upphaf þingsins í morgun má sjá í Lesningunni hér til hliðar. Þá er [v+]http://www.kki.is/skjol/Arsskyrsla-2006.pdf[v-]Ársskýrsla KKÍ 2006[slod-] kominn á vefinn. Í kvöld munu þingfulltrúar snæða hátíðarkvöldverð og eiga góða stund saman. Heiðursgestur í hófinu verður Ólafur Rafnsson fyrrum formaður KKÍ og núverandi forseti ÍSÍ og frú.