5 maí 2006Körfuboltabúðir verða haldnar á Ásvöllum frá þriðjudeginum 6.júní til föstudagsins 9. júní frá 17.00 til 21.00 alla dagana. Búðirnar verða sem fyrr undir styrkri stjórn Ágústs Björgvinssonar, en hann býr yfir mikilli reynslu af æfingabúðum t.d. frá Duke University og Five Star Basketball Camp í Bandaríkjunum. Margir af bestu og færustu þjálfurum og meistaraflokksleikmönnum landsins munu þjálfa í búðunum. Æfingabúðirnar eru fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12 til 18 ára (hópnum er skipt upp eftir aldri , getu og einnig verður sérstakur stelpuhópur).