4 maí 2006Aðalfundur körfuknattleikdeildar Breiðabliks var haldin í vikunni í Smáranum. Eggert Baldvinsson, formaður til þriggja ára, hélt sína lokaræðu en hann lét af formennsku á fundinum. Í hans stað var kjörinn Pétur Hrafn Sigurðsson, fyrrum framkvæmdastjóri KKÍ. Undir stjórn Eggerts hefur deildin vaxið og dafnað dyggilega og má Eggert ganga kátur og keikur af velli eftir stjórnartíð sína. Á fundinum kom fram að hagnaður var að rekstri deildarinnar á síðasta ári og starfsemin í góðu horfi almennt séð. KKÍ óskar Pétri Hrafni til hamingju með formannssætið! Sjá nánar á [v+]http://www.breidablik.is/news.asp?cat_id=6 8[v-]vef Breiðabliks[slod-].