18 apr. 2006Kynningarfundur um ár kvennakörfuknattleiks verður haldinn í dag í sal ÍSÍ í Laugardal. Fjallað verður um hvað í því felst hér á landi, á vegum FIBA Europe og ýmislegt annað sem að konum og körfuknattleiks snýr. Dagskrá fundarins verður í stórum dráttum sem hér segir, en fundurinn hefst kl. 17:00. 1. Opnun fundarins - saga kvennakörfuknattleiks á Íslandi (Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ). 2. "Year of Women´s Basketball" í Evrópu (Hannes Birgir Hjálmarsson, framkvæmdastjóri KKÍ). 3. "Ár kvennakörfuknattleiks" á Íslandi (Guðbjörg Norðfjörð, formaður landsliðsnefndar kvenna). 4. Konur í stjórnarstörfum körfuknattleikshreyfingarinnar á Íslandi (Elínborg Guðnadóttir, formaður ÍS). 5. Þátttaka kvenna í atvinnurekstri og íþróttahreyfingunni (Margrét Kristmannsdóttir, formaður félags kvenna í atvinnurekstri). 6. Umfjöllun fjölmiðla um kvennaíþróttir (Adolf Ingi Erlingsson, formaður samtaka íþróttafréttamanna). 7. Pallborðsumræður - framsöguaðilar, landsliðsþjálfari og landsliðsnefnd. 8. Fundarslit.