7 apr. 2006Haukar unnu Keflavík 81-77 í þriðja úrslitaleik liðanna í Iceland Express-deild kvenna í kvöld og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitil kvenna 2006. Þetta er fyrsti meistaratitill Hauka í kvennaflokki. Haukar höfðu fumkvæðið framan af leiknum, en Keflavík náði síðan að jafna og komast yfir. Leikurinn var í járnum í síðari hálfleik, en Haukar reyndust sterkari á endasprettinum. Meagan Mahoney var stigahæst Hauka með 42 stig og var valinn besti leikmaður úrslitanna. KKÍ óskar Haukum til hamingju með titilinn.